<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T13:31:36" skst="BHar" tegflm="F" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 13:33:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T13:31:36">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="tk" nr="25">
      <ns:málsheiti>mannabreytingar í nefndum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti vill tilkynna að borist hefur erindi frá þingflokki
    Sjálfstæðisflokks um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr.
    þingskapa, á þá leið að Árni Helgason taki sæti sem aðalmaður í
    atvinnuveganefnd í stað Guðrúnar Hafsteinsdóttur, en Guðrún
    Hafsteinsdóttir verði varamaður í stað Bryndísar Haraldsdóttur í sömu
    nefnd. Jens Garðar Helgason taki sæti sem aðalmaður í efnahags- og
    viðskiptanefnd í stað Ingveldar Önnu Sigurðardóttur og Ingveldur Anna
    Sigurðardóttir taki sæti sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
    í stað Árna Helgasonar. Einnig taki Ingveldur Anna Sigurðardóttir sæti sem
    aðalmaður í umhverfis- og samgöngunefnd í stað Jens Garðars Helgasonar og
    Rósa Guðbjartsdóttir og Árni Helgason taki sæti sem varamenn í sömu nefnd
    í stað Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og Njáls Trausta Friðbertssonar. Þá að
    Árni Helgason taki sæti sem aðalmaður í velferðarnefnd í stað Sigurðar
    Arnar Hilmarssonar og Sigurður Örn Hilmarsson taki sæti sem varamaður í
    stað Hildar Sverrisdóttur í sömu nefnd. Árni Helgason taki sæti sem
    varamaður í allsherjar- og menntamálanefnd í stað Rósu Guðbjartsdóttur,
    Jens Garðar Helgason taki sæti sem varamaður í fjárlaganefnd í stað
    Ingveldar Önnu Sigurðardóttur og Guðlaugur Þór Þórðarson taki sæti sem
    varamaður í utanríkismálanefnd í stað Njáls Trausta
    Friðbertssonar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef
    enginn hreyfir andmælum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>