<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T13:34:40" skst="SDG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 13:36:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T13:34:40">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="17">
      <ns:málsheiti>gildi umsóknar Íslands að ESB</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hæstv. utanríkisráðherra virðist nokkuð ráðvilltur
    eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð aðildarviðræðna við
    Evrópusambandið og gat hér í þinginu fyrir helgi ekki svarað því hvort
    Ísland væri umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu. Þetta vakti nokkra
    furðu enda var því ekki haldið fram fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna að
    Ísland væri umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu. Evrópusambandið
    heldur því ekki fram. Ef það er inni í myndinni núna að Ísland sé orðið
    umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna þá
    eru það skilaboð um að ekki aðeins sé ekki tekið mið af niðurstöðu
    þjóðarinnar heldur skuli gengið þvert á hana. Evrópusambandið heldur
    reyndar úti lista yfir umsóknarríki um aðild og þar eru níu fátæk ríki í
    Suðaustur-Evrópu. Þeirra á meðal er Tyrkland, sem hefur verið með umsókn
    um áratugaskeið og ekkert gerst í henni í meira en 20 ár, en það er þarna
    inni enn þá. Eitt hugsanlegt umsóknarríki um aðild er Kósovó, sem er
    reyndar ekki viðurkennt sem ríki af öllum löndum Evrópusambandsins, en
    ekki Ísland af því að Ísland er ekki umsóknarríki um aðild að
    Evrópusambandinu og hefur ekki talið vera það þar til að hæstv.
    utanríkisráðherra skapaði þessa óvissu hér fyrir helgi. Getur hæstv.
    forsætisráðherra eytt óvissunni og sagt þinginu hið augljósa, að Ísland er
    ekki umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu? Getur hæstv. ráðherra
    jafnframt gefið okkur afstöðu sína til þess hvort ekki sé nú rétt að skýra
    málið almennilega fyrir Evrópusambandinu og benda því á að Ísland líti
    ekki heldur svo á að umsóknin frá 2009 sé gild að mati Íslands?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>