<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T13:38:56" skst="SDG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 13:40:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T13:38:56">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="17">
      <ns:málsheiti>gildi umsóknar Íslands að ESB</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Ég vek athygli hæstv. forseta á því að hæstv. forsætisráðherra á
    tveimur mínútum gat ekki svarað einfaldri spurningu um fyrirliggjandi
    staðreynd. Hún gat ekki staðfest að Ísland væri ekki umsóknarríki um aðild
    að Evrópusambandinu. Í hvaða feluleik er þessi ríkisstjórn eiginlega lent?
    Það er síðan mjög undarlegt, finnst mér, út frá hagsmunum
    ríkisstjórnarinnar og flokka sem kynnu að hafa áhuga á Evrópusambandinu,
    að vilja halda í umsókn Össurar Skarphéðinssonar og Jóhönnu Sigurðardóttur
    til eilífðar og hafa það sem upphafspunkt í viðræðunum. En eftir að
    ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum 6. mars að boða til
    þjóðaratkvæðagreiðslunnar sagði hæstv. forsætisráðherra: „Þetta er umræða
    sem hefur hangið yfir íslenskri þjóð. Nú getum við ákveðið hvort við
    viljum loka á þetta mál fyrir fullt og allt.“ Var ekkert að marka þau orð
    hæstv. forsætisráðherra frekar en yfirlýsingar varðandi Evrópusambandið
    fyrir kosningar?</ns:mgr>

    <!--https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-03-06-thjodaratkvaedagreidsla-um-framhald-adildarvidraedna-bodud-29-agust-468929-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>