<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-14T13:40:08" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 13:41:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T13:40:08">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="17">
      <ns:málsheiti>gildi umsóknar Íslands að ESB</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það getur vel verið að hv. þingmaður syrgi það að
    hafa þetta mál ekki á dagskrá lengur. Ríkisstjórnin setti það á dagskrá,
    spurði þjóðina og nú er búið að taka ákvörðun í þessu máli. Ég hef lýst
    því yfir opinberlega, af því að það hefur komið upp umræða um hvort það
    eigi að draga umsóknina til baka eða ekki, og ég hef sagt að við munum
    ekki gera það, ekki frekar en aðrar ríkisstjórnir sem hér hafa verið. Það
    liggur alveg fyrir hver afstaðan er í þessu máli. Það er enn þá verið að
    reyna að halda á lofti einhverjum formlegum, tæknilegum útfærslum í máli
    sem þjóðin er búin að afgreiða núna. <ns:frammíkall skst="SDG">Hvernig?</ns:frammíkall> Með því að segja nei við að halda
    áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. <!--Sigrún Gauts sendi línu í Gerðabókaspjallið og staðfesti að SDG hafi gripið
fram í og hvað hann sagði. / ii-->Það verður ekki meira aðhafst í þessu máli í
    tíma þessarar ríkisstjórnar, hv. þingmaður. Ég held að þú eigir að bera
    virðingu fyrir þjóðinni þegar hún segir: Við viljum ekki að halda áfram
    með þetta mál. Við erum sátt við okkar samband núna við Evrópusambandið.
    Við förum ekki lengra áfram með það. Það er ekki í mínum verkahring að
    fullyrða það hvað gerist hér um aldur og ævi. Það geta komið upp alls
    konar aðstæður, það geta komið aðrar ríkisstjórnir. Ég veit ekki hvað hv.
    þingmaður gæti tekið upp á sínum þingferli síðar ef hann situr síðar í
    ríkisstjórn. Ekki ætla ég að svara fyrir um allt í framtíð Íslands. Ég
    veit hvað þessi ríkisstjórn mun gera. Hún mun ekki halda áfram
    aðildarviðræðum en hún mun áfram virða gott og mikilvægt samstarf við
    Evrópusambandið líkt og aðrar þjóðir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>