<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T13:41:37" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 13:43:18 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T13:41:37">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="18">
      <ns:málsheiti>framlög til samgangna</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Margt áhugavert má lesa úr nýframkomnu
    fjárlagafrumvarpi og þar gefst einnig tækifæri til að kanna sannleiksgildi
    pólitískrar orðræðu frá síðasta ári. Hver man ekki eftir slagorðum
    ríkisstjórnarinnar eins og „ræsum vélarnar“ og stóryrtum yfirlýsingum um
    að nú verði aftur farið að bora göng? Ef við horfum til útgjalda ríkisins
    til samgangna á þessu kjörtímabili hlýtur sú spurning að vakna hvort það
    hafi ekki verið ætlunin að láta vélarnar ganga a.m.k. um einhverja hríð,
    eða eru þær strax orðnar olíulausar? Af hverju er raunlækkun til samgangna
    í fjárlagafrumvarpinu um 6,3% á sama tíma og ríkisstjórnin ákvað í síðustu
    fjárlögum að sækja 7,6 milljarða í hækkun á veiðigjaldi, 7,5 milljarða í
    hækkun á vörugjöldum af ökutækjum, 3,3 milljarða í hækkun á
    kílómetragjaldi og nú í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2027 4 milljarða í
    hækkun á kílómetragjaldi auk ýmissa krónutölugjalda, allt saman rökstutt
    með því að nú ætti að gera gangskör í samgöngumálum? Hvernig útskýrir
    hæstv. innviðaráðherra að þrátt fyrir alla þessa auknu gjaldheimtu skuli
    raunlækkun til samgangna vera tæpir 3 milljarðar? Og hvernig rímar það við
    yfirlýsingar hæstv. ráðherra um verulega aukið fjármagn til
    samgangna?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>