<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-14T13:43:25" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 13:45:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T13:43:25">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="18">
      <ns:málsheiti>framlög til samgangna</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem
    mér þykir gott að geta svarað hér. Við erum að stórauka framlög til
    samgöngumála og vegamála frá fyrri ríkisstjórn. Varðandi það sem fyrri
    ríkisstjórn var að gera í vegamálum þá áætlaði hún í kringum 13 milljarða
    í viðhald. Við erum í ár að fara upp í 17,5 milljarða. Í fyrra settum við
    auka 3 milljarða. Næsta ár ætlum við að fara í 17,6 milljarða, við ætluðum
    að fara hærra en lendum í 17,6 vegna aðhalds.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Framkvæmdafé í samgönguáætlun. Fyrri ríkisstjórn ætlaði á fyrstu
    fimm árum þeirrar samgönguáætlunar sem dagaði uppi í þinginu árið 2023 eða
    2024 að leggja fram 261 milljarð. Við erum núna að leggja fram 351
    milljarð á fyrstu fimm árum samgönguáætlunar. Það er 90 milljörðum meira.
    Svona getum við haldið áfram. Vetrarþjónusta var rekin með viðvarandi
    halla hjá síðustu ríkisstjórn. Við erum núna að fara í meira en 14
    milljarða. Við erum að bæta við tæpum 14 milljörðum meira á fyrsta
    tímabilinu en hjá síðustu ríkisstjórn. Jarðgöng, algjör kyrrstaða í
    jarðgangagerð, engin jarðgöng gerð frá 2022. Byrjað á jarðgöngum 2017. Við
    erum að fara að hefja framkvæmdir á næsta ári. Við erum líka að koma með
    nýtt innviðafélag sem mun líklega gjörbylta fjármögnun á
    innviðaframkvæmdum. Þetta er það sem við erum að gera. Þetta er breyting
    sem við erum að gera.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi fjárlagagerðina núna í ár er það markmið
    ríkisstjórnarinnar að ná niður verðbólgu í landinu og ná niður vaxtastigi.
    Út á það ganga núverandi fjárlög. Við erum samt að bæta í varðandi
    samgöngur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>