<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T13:45:20" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 13:46:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T13:45:20">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="18">
      <ns:málsheiti>framlög til samgangna</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin en hann
    kemst auðvitað ekki fram hjá því að hann er engu að síður að draga úr
    fjárframlögum til samgangna þrátt fyrir verulega aukna
    gjaldheimtu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Nú er innheimta af ökutækjum í
    fjárlagafrumvarpi næsta árs 89 milljarðar kr. eða um 1,6% af vergri
    landsframleiðslu, en fjárveitingar til vegaframkvæmda tæp 0,7% af vergri
    landsframleiðslu. Nú eru uppi háleit markmið með stofnun innviðafélags um
    að hraða uppbyggingu samgönguinnviða með aukinni gjaldtöku af ökutækjum.
    Það er tvennt sem ég vil nefna: Fyrst innviðafélagið er að fjármagna sig
    sjálft, af hverju erum við þá að hækka alla þessa skatta? Og hefur
    ráðherra engar áhyggjur af því að há skattlagning ökutækja muni draga úr
    stuðningi og greiðsluvilja bifreiðaeigenda ef það á endurtekið að svíkja
    loforð um að ráðstafa auknum hluta innheimtra gjalda til uppbyggingar
    samgöngukerfisins?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>