<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-14T13:46:33" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 13:47:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T13:46:33">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="18">
      <ns:málsheiti>framlög til samgangna</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Tekjur af bifreiðum og samgöngum í ríkissjóð
    hafa verið á tímabilinu 2010–2017 1,7% af þjóðarframleiðslu, VLF. Við erum
    núna komin upp í 1,6%. Það hefur alltaf verið þannig að allir peningar sem
    koma af samgöngum eða bifreiðum renna ekki beint til samgöngumála. Þetta
    fer í hítina — afsakið, <ns:frammíkall/> fer í ríkissjóð og þaðan er
    úthlutað fé á fjárlögum. Þannig er það. Varðandi innviðafélagið þá mun það
    fá eigið fé og það stendur í 5. gr. fjárlaga. Það verður núna farið í
    Fljótagöng á vegum innviðafélagsins, það verður boðið út á vegum
    innviðafélagsins og það mun sjá svo um þá framkvæmd. Við gerum líka ráð
    fyrir að Sundabraut fari þar inn síðar meir. Við ætlum að setja þar inn
    tekjuberandi eignir; Vaðlaheiðargöng, Hornafjarðarfljót og Ölfusárbrú
    þegar þar að kemur. Það eru því tekjuberandi eignir og eigið fé og svo
    verða líka veggjöld. Þetta verður eins konar tekjumódel hjá
    innviðafélaginu. <ns:bjalla/> Það breytir því ekki að tekjur af bifreiðum
    fara í ríkissjóð. Ég biðst afsökunar á að hafa notað orðið „hítina“, en
    það vissu allir hvað ég var að meina.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>