<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T13:48:07" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 13:50:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T13:48:07">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="19">
      <ns:málsheiti>bankaskattur og afleiðingar hans</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langaði að beina þeirri spurningu fyrst og
    fremst til hæstv. ráðherra hvort hún mæti hingað til þings núna í upphafi
    þingvetrar uppgefin, hvort hæstv. forsætisráðherra sé uppgefin. Ég var
    nefnilega á fundi í morgun sem haldinn var af Samtökum fyrirtækja í
    fjármálaþjónustu og var þar m.a. með hæstv. fjármálaráðherra. Þar hafa
    menn miklar áhyggjur af skattlagningu sem boðuð er. Þar á bænum hafa menn
    auðvitað sérstakar áhyggjur af bankaskattinum og umræður voru um það.
    Hæstv. fjármálaráðherra var með mér í pallborði þar og það lá svo illa á
    honum að ég treysti mér ekki til þess og fannst ekki á það reynandi að
    bera upp frekari spurningar á hann hér. Mér fannst hann nefnilega hafa
    svolítið gefist upp á verkefninu, þ.e. verkefninu við efnahagsstjórnina. 6
    milljarða kr. viðbótarskatt á bankana réttlætir hann með aukningu
    ríkisútgjalda núna fyrir mörgum árum síðan í tíð annarrar ríkisstjórnar.
    Það er enn þá verið að afsaka útgjöldin og skattlagninguna með vísan til
    heimsfaraldursins eða jarðeldanna eða hvað það nú er. Hann sá ofsjónum
    yfir öllu því. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Það kom fram eitt áhugavert á þessum fundi, að 6 milljarða kr.
    viðbótarskattur á bankana gæti haft þá afleiðingu að draga úr útlánagetu
    þeirra um 50 milljarða. Það munar um minna þegar þarf að fjármagna
    húsnæðislán fjölskyldnanna. Þetta er bara eitt dæmi um þessar miklu
    skattahækkanir og útgjaldaaukningu sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpinu
    og bandorminum sem verður ræddur hérna í dag. Þess vegna langaði mig að
    spyrja hæstv. ráðherra: Hefur hún í raun gefist upp á verkefninu og telur
    hún það vænlegt til árangurs fyrir hagsæld Íslands að reyna að skattleggja
    Íslendinga inn í hagsældina? <ns:bjalla/> Telur hæstv. forsætisráðherra,
    sem er nú hagfræðimenntuð, að það sé vænlegt til árangurs?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>