<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-14T13:50:34" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 13:52:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T13:50:34">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="19">
      <ns:málsheiti>bankaskattur og afleiðingar hans</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og fyrir að
    velta fyrir sér hvernig ég er upplögð. Ég er reyndar örlítið syfjuð, enda
    vaknaði ég klukkan tvö í morgun. Ég var í sólarhringsferð í Lapplandi að
    hitta leiðtoga bandalagsríkja í Rovaniemi þar sem var verið að tala til að
    mynda um málefni á okkar slóðum. Það breytir því ekki að ég er bara frekar
    glöð. Ég er frekar glöð að hafa náð markmiði í þessum fjárlögum um að snúa
    við rekstri ríkissjóðs. Þetta er ekki auðvelt. Þetta er ekki gert með
    einni aðgerð. Hér hefur oft verið talað um slagorð; slagorðið að það eigi
    bara að skera niður, eins og það sé ekkert mál að taka við ríkinu eins og
    það er, eins og búið er að byggja það upp yfir mörg ár og áratugi og bara
    ætla að sneiða allt niður og taka 5% af landsframleiðsluhlutfallinu þarna
    inni. Ef við horfum bara á hvað við erum að gera þá eru þetta kannski um
    80 milljarðar sem er verið að leita að þarna til að loka umræddu gati. Um
    44 eða 45 milljarðar eru á útgjaldahliðinni. Útgjöld eru um 30% af
    landsframleiðslu. Þetta er það minnsta á þessum áratug. Það liggur alveg
    fyrir. Þetta hlutfall hefur ekki farið niður fyrir 30% í mörg, mörg ár.
    Það er ekkert hæft í því að það sé verið að láta útgjöld alveg í friði og
    það er með mestu útgjaldaráðstafanir sem við höfum séð í 10–15 ár.
    Vissulega er líka verið að sækja tekjur, enda hefur það verið vandamálið
    að það hefur gengið illa að loka gatinu, m.a. vegna þess að það hafa verið
    gerðir alls konar, hvað á ég að segja, samningar, það hafa verið aukningar
    í tilfærslukerfum í gegnum árin, hlutir sem við erum að hluta til að taka
    á en þú gerir ekki á einni nóttu, en það hefur ekki verið vilji til þess
    að mæta þessu líka með sanngjarnri skattheimtu, ef svo má segja. Ég á ekki
    erfitt með það að leggja auknar álögur, ef það er upplifun fólks, á
    bankana. Þegar bankaskatturinn var lækkaður á sínum tíma fyrir þessi
    fyrirtæki sem eru að skila um 100 milljarða hagnaði þá var það á þeim
    forsendum að þetta myndi skila sér í lægri gjöldum til neytenda. Síðasta
    ríkisstjórn gerði m.a. úttekt á þessu og komst að þeirri niðurstöðu að það
    hefði ekki verið raunin, <ns:bjalla/> þannig að hér er verið að stíga
    skref í átt að eilítilli hækkun en hún er ekki jafn mikil og hún var áður,
    m.a. á vakt síðustu ríkisstjórnar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>