<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T13:53:00" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 13:54:18 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T13:53:00">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="19">
      <ns:málsheiti>bankaskattur og afleiðingar hans</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Á þessum fundi sem ég vitnaði til komu einmitt
    sérstaklega fram fullyrðingar forsvarsmanna bankanna, a.m.k. eins banka,
    um að þegar bankaskatturinn var lækkaður á sínum tíma hafi einmitt
    útlánavextir lækkað í þeim banka. Þetta þarf allt að skoða. En það vekur
    auðvitað athygli að í bandorminum sem við ræðum hér um á eftir er engin
    tilraun gerð til þess að meta áhrif þessa tiltekna skatts á ekki bara
    fjármálafyrirtæki heldur líka á viðskiptavini og fyrst og fremst eigendur
    bankanna. En hverjir eru það? Það er ekki verið að skattleggja bankana.
    Það er ekki verið að skattleggja eitthvert hús hérna úti í bæ. Það er
    verið að skattleggja eigendur bankanna og hverjir eru það? Það eru
    lífeyrissjóðir. Það eru lífeyrisþegar þessa lands. Þeir eiga allt að
    30–40% af bönkunum. Það eru lífeyrissjóðirnir og ríkið sjálft sem á
    stærstan hluta sem einstakur eigandi og verður af arðgreiðslum. Hver verða
    áhrifin af þessum skatti sem og öllum öðrum sköttum? Er hæstv. ráðherra
    ekki sammála mér í því <ns:bjalla/> að það þýðir ekki að henda hér inn í
    þingið þessum áformum án þess að hafa gert mat á áhrifum þess? Eða eiga
    þingmenn að vinna þá vinnu fyrir hæstv. ríkisstjórn?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>