<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-14T13:54:27" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 13:55:49 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T13:54:27">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="19">
      <ns:málsheiti>bankaskattur og afleiðingar hans</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Mér finnst alveg sjálfsagt að þetta sé rætt. Í því
    felst fjárlagavinnan, að svona hlutir séu teknir fyrir. Auðvitað er búið
    að leggja vinnu í þetta og skoða. Ég vitnaði m.a. hérna í greiningu sem
    var gerð í tíð síðustu ríkisstjórnar, sem ég hef enga ástæðu til að ætla
    að hafi verið röng, þar sem kemur fram að það hafi verið lækkanir á
    bankaskattinum og það hafi líka verið ákveðnar svona þjónustuhagræðingar
    sem hafi verið jákvæðar. Það er auðvitað bara gott að bankarnir séu að
    færa sig í auknum mæli yfir í tæknilausnir o.fl. en það hefur ekki skilað
    sér til neytenda. Þetta eru bara upplýsingar sem liggja fyrir. Auðvitað
    eru skiptar skoðanir um þetta. Auðvitað eru bankarnir ekki ánægðir með
    þessa skattlagningu. Kemur það mér á óvart að forsvarsmenn bankanna skuli
    mótmæla? Nei. Það breytir því ekki að við erum í þeirri stöðu að við erum
    í miklu útgjaldaaðhaldi. Við erum með minnsta hlutfall útgjalda á síðustu
    árum, 30%. Það er bara allt í lagi að fletta þessu upp þegar það er verið
    að tala um að þetta sé allt sótt í gegnum tekjur. Á móti kemur að við erum
    líka að borga rúma 160 milljarða í vexti á hverju einasta ári vegna þess
    að það var ekki vilji hér til að loka þessu gati. Það er gríðarleg ógn
    <ns:bjalla/> við velferð í landinu að halda þessu gangandi. Það þarf að
    loka gatinu og ég veit alveg að bankarnir geta vel brúað þetta án þess að
    varpa þessu yfir á neytendur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>