<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-14T13:56:58" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 13:59:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T13:56:58">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="20">
      <ns:málsheiti>afleiðingar krónutöluhækkunar gjalda á vísitölu neysluverðs</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég geri
    mér alveg grein fyrir því hvaða áhrif krónutölugjöld hafa í janúar, alveg
    eins og þau hafa haft á öllum árum í gegnum tíðina, alveg eins og þegar
    síðasta ríkisstjórn hækkaði krónutölugjöld um 7,7% árið 2023. Ef fólk
    ætlar að fara á þann stað með krónutölugjöldin í þessum sal að þetta sé
    allt í einu einhver nýr veruleiki, að hér sé tekin verðbólga síðasta árs
    og henni sé bætt við krónutölugjöld, þá erum við komin í einhverjar
    sögufalsanir. Í gegnum tíðina, vissulega, og það má gefa fólki það, hefur
    verið ráðist í sértækar ráðstafanir, sértækar aðgerðir, þegar hefur verið
    uppi ákveðin staða í samfélaginu. Það var gert til að mynda 2025 í kjölfar
    þess að skrifað var undir kjarasamninga, þá var vilyrði fyrir 2,5% hækkun.
    Ég hef sagt það opinberlega, og reyndar líka sagt það hér í þinginu, að
    þetta sé eitthvað sem við erum að ræða núna við vinnumarkaðinn, með hvaða
    hætti við getum komið til móts við hann. En það að halda því fram að það
    sé eitthvað nýtilkomið að krónutölugjöld fylgi verðlagi, finnst mér mjög
    sérstakt. Auðvitað hefur þetta eilítil jákvæð áhrif á verðbólguna en í
    umhverfi þar sem meðaltalsverðbólga frá aldamótum hefur verið 5% þá segir
    það sig sjálft að 0,2–0,3% hækkun á verðlagi í upphafi árs er ekki það sem
    er að gjörbreyta landslaginu þegar kemur að verðlagi. Það hefur verið
    undirliggjandi verðóstöðugleiki í langan tíma hér sem kemur til af mörgum
    ástæðum. Hann kemur til m.a. af því að við rekum hagkerfi þar sem við erum
    mjög innflutnings- og útflutningsfrek þannig að gjaldmiðill og
    gjaldeyrismarkaður hafa mikil áhrif. Við erum líka með vinnumarkað sem
    hefur, já, bara verið duglegur að sækja kaup og kjör fyrir fólkið í
    landinu. Síðan höfum við fyrst og fremst verið með verðtryggingu og
    verðvísitölu sem hafa gegnsýrt allt íslenskt samfélag og gert það að
    verkum að við sjáum höggin dynja oft í verðbólgunni. Við erum að taka á
    þessu. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að þetta hefur áhrif á
    vísitölu neysluverðs en það er ekki nýtilkomið að ríkið sé rekið með
    þessum hætti <ns:bjalla/> og við erum að skoða sérstaklega þessar hækkanir
    í samtali við vinnumarkaðinn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>