<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T13:59:21" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:00:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T13:59:21">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="20">
      <ns:málsheiti>afleiðingar krónutöluhækkunar gjalda á vísitölu neysluverðs</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv.
    forsætisráðherra kærlega fyrir svarið sem var áhugavert og já, það er gott
    að við erum sammála um það, enda kemur það fram í því frumvarpi sem við
    erum að fara að ræða hér á eftir að áhrifin eru metin á 0,28%, ef ég man
    töluna rétt, til hækkunar á vísitölunni. Mér finnst sérstakt, ég verð bara
    að segja það — og ég geri mér grein fyrir því að þetta er ekkert nýtt.
    Þetta hefur verið gert áður. Stundum hafa menn farið við sérstakar
    aðstæður og hækkað þetta um 2,5%, farið með þetta í verðbólgumarkmið
    Seðlabankans til að öðlast trúverðugleika og sýna traust og gott fordæmi.
    Það er því miður ekki gert núna en ég hefði alla vega farið þá
    leið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sem mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra um í mínu
    síðara andsvari er það hvort hún fyrir sitt leyti sé tilbúin að endurskoða
    þessa hækkun, t.d. til þess að mæta þeim gagnrýnisröddum sem hafa heyrst
    frá verkalýðsforystunni, <ns:bjalla/> sérstaklega þegar við erum nú með
    forsenduákvæði kjarasamninganna sem er brostið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>