<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-14T14:00:48" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:02:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:00:48">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="20">
      <ns:málsheiti>afleiðingar krónutöluhækkunar gjalda á vísitölu neysluverðs</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og endurtek
    bara það sem ég sagði hér áðan, sem er að þetta væri einmitt til skoðunar
    í samtali við aðila vinnumarkaðarins. Þetta er raunar búið að vera til
    skoðunar frá því í sumar. Við erum í ákveðnu samtali. Það er verið að
    skoða heildrænt hvernig við getum tekið fleiri aðila að borðinu. Það er
    líka verið að ræða við sveitarfélögin. Það hefur verið eilítið flókið
    vegna þess að við vorum með sveitarstjórnarkosningar, það urðu breytingar
    í stjórn sambandsins og nýjar sveitarstjórnir eru að koma sér fyrir þannig
    að við höfum líka þurft að gefa þeim tíma til að breyta sinni mönnun, ef
    svo má segja. En þetta er, eins og ég sagði, til skoðunar. Við gerum okkur
    alveg grein fyrir því að þetta hefur áhrif að hluta. En það hefur líka
    áhrif — verð ég að segja af því að ég sé alveg hvernig þessi umræða er
    farin að þróast í þessum sal varðandi þessar gjaldahækkanir almennt — ef
    það er lögfest hér þjónusta sem er kostnaðarmetin og svo trekk í trekk, ár
    eftir ár, þá rýrnar hún að verðgildi <ns:bjalla/> og gerir það að verkum
    að við getum ekki staðið undir lögbundinni þjónustu sem við segjumst ætla
    að standa undir. <ns:bjalla/> Þannig að við skulum ekki gerast svo
    kreddukennd <ns:bjalla/> að fara allt í einu að taka fyrir allt sem ríkið
    hefur gert í þessum málum. <ns:bjalla/> En auðvitað geta verið sérstakar
    aðstæður sem kalla á inngrip.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>