<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T14:02:32" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:04:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:02:32">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="21">
      <ns:málsheiti>afleiðingar krónutöluhækkunar gjalda á vísitölu
      neysluverðs</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að ganga eftir svari við spurningu
    hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem kallaði nú á margar
    spurningar. Vonandi er búið að dreifa fyrirspurn frá mér því þetta er með
    slíkum ólíkindum. Það er ekki þannig að það geti farið frá
    ríkisstjórninni.</ns:mgr>

    <!--veit ekki við hvaða fsp hann á, finn bara eina frá honum sem passar ekki við þetta.-->

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Hæstv. forsætisráðherra, formaður
    Samfylkingarinnar, gekk hér fram fyrir kosningar og var með mjög skýr
    skilaboð. Það átti ekki að hækka skatta á venjulegt fólk og ekki hækka
    skatta á vinnandi fólk. Það er búið að hækka núna skatta um 60 milljarða á
    tveimur árum. Það er búið að hækka tekjuskattinn. Á síðasta ári hafði það
    áhrif á um 14.500 pör, 2,8 milljarðar. Núna eru barnabætur og vaxtabætur,
    annað er fallið niður og hitt er raunlækkun upp á tæplega 2. Aftur er
    gengið í tekjuskattinn upp á 3,1 milljarð. Svo eru það auðvitað
    krónutölugjöldin. Látum vera bílaskattana. Ég spyr, virðulegur forseti: Er
    þetta ekki venjulegt fólk sem borgar þessa skatta? Er þetta ekki vinnandi
    fólk sem borgar þessa skatta? Ef þetta er ekki venjulegt fólk og þetta er
    ekki vinnandi fólk, hvaða fólk er það þá?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil fá skýrt svar hvað þetta varðar því
    þetta skiptir máli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sömuleiðis, virðulegi forseti, er til nokkuð sem heitir
    fjármálaráð. Það er fagráð sem samanstendur af lærðum hagfræðingum sem
    hafa komið með ábendingar um fjármálaáætlun núna tvisvar. Ríkisstjórnin
    hefur ekki orðið við neinum af þessum ábendingum. Ég spyr annars vegar:
    Telur hæstv. forsætisráðherra að það gæti verið, vegna þess að það hefur
    ekki verið hlustað á fjármálaráð, að þá hafi vextir hækkað, þvert á það
    sem var lofað? <ns:bjalla/> Svo er hitt: Úr því að það er ekki farið neitt
    eftir fjármálaráði, stendur til af ríkisstjórninni að leggja það
    af?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>