<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-14T14:05:01" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:07:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:05:01">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="21">
      <ns:málsheiti>skatta- og vaxtahækkanir og ráðgjöf fjármálaráðs</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það er
    svolítið merkilegt með þessa umræðu um skatta og gjöld að nú er þessi
    ríkisstjórn að klára verkefni sem var lagt af stað með í síðustu
    ríkisstjórn þegar kom að kílómetragjaldi, fjármálaáætlun í
    stjórnarmeirihluta og hjá ríkisstjórn sem hv. þingmaður studdi á sínum
    tíma sem ætlaði að hækka kílómetragjöld um 7,5 milljarða á næsta ári. Hér
    kannast fólk ekki við eigin áætlanir. Það var vissulega búið að eyða
    þessum útgjöldum fram í tímann, vilji til að vera með vilyrði fyrir alls
    konar þáttum en í dag kannast fólk ekki við eigin útreikninga og plön hvað
    þetta varðar. Stór hluti af þeim breyttu tekjum sem við erum að fara í á
    móti, af því að við erum vissulega að gefa eftir í kílómetragjaldinu, 4
    milljarðar á næsta ári í staðinn fyrir 7,5 milljarða sem síðasta
    ríkisstjórn var búin að samþykkja í sinni eigin fjármálaáætlun — við erum
    að sækja tekjur þegar kemur að bönkunum, já, þegar kemur að
    ferðaþjónustunni að hluta til, þegar kemur að fiskveiðum, veiðigjaldi. Við
    höfum verið opinská hvað það varðar, enda, ef ég á að svara fyrir
    Samfylkinguna, var þetta eitt af því sem við töluðum fyrir í okkar stefnu,
    að sækja sanngjarnar tekjur þegar kemur að auðlindunum. Ég vil líka benda
    á að við erum í þeirri stöðu að vera að borga 170 milljarða kr. í
    vaxtabætur á hverju einasta ári. Þegar sú ríkisstjórn sem hér sat tók við
    á sínum tíma, fyrir níu árum síðan líklega, var þessi upphæð um 50
    milljarðar á ári. Þetta er viðbótarkostnaður sem ríkið er að greiða og í
    rauninni að taka úr vasa heimilanna vegna þess að það tókst ekki að halda
    rekstrinum réttum megin við núllið. Það þýðir ekki að halda öllu í
    lágmarki til þess eins að vera með risastórt gat á ríkissjóði í mörg ár og
    gera það að verkum að hér skapast þensla, verðbólga, mikill verðbólgu- og
    vaxtaskattur. Við höfum sagt það og lofuðum því að við ætluðum að skapa
    aðstæður til að lækka vexti og verðbólgu með því að reka ríkið réttum
    megin við núllið og ekki á yfirdrætti. Það er það sem við erum að gera og
    það er það besta sem við getum gert fyrir veski heimilanna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>