<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T14:07:18" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:08:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:07:18">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="21">
      <ns:málsheiti>skatta- og vaxtahækkanir og ráðgjöf fjármálaráðs</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vek athygli á því að hæstv. forsætisráðherra
    svaraði í engu spurningunum og er augljóslega fullkomlega villt í þykkri
    holtaþoku. Ég spurði hér um tekjuskattinn. Ég spurði um barnabæturnar. Ég
    spurði um vaxtabæturnar en lét nú vera að fara í sjúklingagjöldin. Hæstv.
    ráðherra þurfti bara að svara því hvort það væri venjulegt fólk sem
    borgaði þessa skatta, venjulegt fólk sem fær tekjur og borgar tekjuskatt,
    venjulegt fólk sem keyrir bíla. Er þetta ekki venjulegt vinnandi fólk? Og
    úr því að hæstv. ráðherra er að hækka skatta á þetta fólk, af hverju sagði
    hún við þetta fólk fyrir kosningar: Við ætlum ekki að hækka skatta á
    ykkur?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Hér talar hæstv. ráðherra eins og hún kom ný að
    málum, var í fjárlaganefnd. Hún veit heldur ekkert að WOW air fór á
    hausinn. Hún veit ekkert að Covid kom. Hún veit ekkert af Reykjaneseldum.
    Hún kemur alveg ný að borðinu <ns:bjalla/> og er ekki enn búin að svara
    því, manneskja sem þekkir, hæstv. ráðherra sem þekkir <ns:bjalla/> þessi
    mál inn og út, sem lofaði skýrt ákveðnum hlutum, er ekki búin að svara því
    af hverju hún sveik þessi loforð.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>