<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-14T14:08:47" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:10:18 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:08:47">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="21">
      <ns:málsheiti>skatta- og vaxtahækkanir og ráðgjöf fjármálaráðs</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Við höfum farið þá leið í húsnæðismálum að í staðinn
    fyrir að endurvekja vaxtabótakerfið sem síðasta ríkisstjórn lagði niður og
    skildi eftir 800 milljónir, þetta var tugmilljarða kerfi — síðasta
    ríkisstjórn lagði niður vaxtabótakerfið og já, við hefðum vissulega getað
    tekið ákvörðun um að snúa því við. Við ákváðum frekar að fara þá leið að
    styrkja almenna íbúðakerfið og fara í að styrkja hlutdeildarlánakerfið.
    Þannig að auðvitað er alveg hægt að færa rök fyrir því að hægt sé að gefa
    í í vaxtabótum. <ns:frammíkall/> Þetta er bara ákveðin vegferð sem við
    erum að fara í.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þegar kemur að barnabótum þá hefði ég gjarnan viljað gera betur,
    ég skal alveg viðurkenna það, og þetta er eitt af því sem við erum með til
    skoðunar, með hvaða hætti við getum styrkt það kerfi og haft sterkari
    skorður hvað það varðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan vil ég líka vekja athygli á því að við höfum gert allt sem
    við getum til að hlífa almenningi vegna þess að stærsti einstaki
    kostnaðurinn sem almenningur er að lenda í er þetta verðbólguskot sem
    hefur verið að ganga hér yfir í mörg, mörg ár. Hún er vissulega of há,
    verðbólgan núna, 5,6%. Hún fór nær aldrei undir 5% á síðasta kjörtímabili
    þannig að þetta er gríðarlegur vaxtakostnaður sem hefur safnast upp.
    <ns:bjalla/> Venjulegt fólk notar líka þjónustu. Það notar
    heilbrigðisþjónustu og það notar aðra þætti í kerfinu. Það breytir því
    ekki að síðustu ríkisstjórn tókst ekki að snúa þessu við. <ns:bjalla/>
    <ns:frammíkall/></ns:mgr>

    <ns:mgr> Hæstv. forseti. Ég hef lokið mínu máli og við getum rætt þetta
    saman, hv. þingmaður, hér á göngunum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>