<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T14:10:57" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:16:33 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:10:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég mun nú gera grein fyrir helstu málefnum og
    verkefnum sem heyra undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið í frumvarpi
    til fjárlaga fyrir árið 2027.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="BHar">Forseti biður um hljóð í þingsal svo að
    vel heyrist í ræðumanni.</ns:forseti></ns:mgr>

    <ns:mgr>— Ég er með framsóknarrödd, hún er lág. Heildarútgjöld
    málefnasviðsins Örorka og málefni fatlaðs fólks eru áætluð rúmir 148,7
    milljarðar árið 2027. Útgjöldin hækka um rúma 12 milljarða kr. milli ára
    þegar tekið hefur verið tillit til almennra launa- og verðlagsbreytinga.
    Fjárheimildir eru auknar um 2,3 milljarða vegna endurmats á sjúkra- og
    endurhæfingargreiðslum og tæpa 1,8 milljarða til að mæta áætlaðri fjölgun
    lífeyrisþega. Með þessu er brugðist við þeirri þróun sem þegar hefur komið
    fram og fjárheimildir færðar nær fyrirsjáanlegri þörf. Greiðslur
    almannatrygginga eru undanþegnar almennri aðhaldskröfu frumvarpsins enda
    lögbundnar. Samhliða er gert ráð fyrir að betri samhæfing þjónustu,
    markvissari endurhæfing og innleiðing hins nýja örorkulífeyriskerfis dragi
    úr vexti sjúkra- og endurhæfingargreiðslna. Mikilvægt verður að fylgjast
    náið með þeirri þróun á árinu og bregðast tímanlega við ef forsendur
    breytast. Á árinu 2027 verður áfram unnið að innleiðingu samþætts
    sérfræðimats. Umsóknarferli verða einfölduð, upplýsingar til umsækjenda
    bættar og umsóknir og samskipti við TR færð yfir á island.is. Áhersla
    verður lögð á samvinnu þeirra sem veita endurhæfingarþjónustu og á að fólk
    með skerta starfsgetu eigi raunhæfan kost á þátttöku á vinnumarkaði að
    hluta eða að fullu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Málefni fatlaðs fólks eru mikilvægur þáttur í
    verkefnum ráðuneytisins. Ráðuneytið fer m.a. með réttindagæslu fyrir
    fatlað fólk og innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs
    fólks. Á árinu 2027 verður áfram unnið að aðgerðum samkvæmt landsáætlun um
    innleiðingu samningsins. Þar er m.a. lögð áhersla á betra aðgengi að
    upplýsingum um réttindi og þjónustu, aukna fræðslu og stuðning við
    sjálfsákvörðunarrétt fatlaðs fólks. Heildarútgjöld til vinnumarkaðsmála og
    atvinnuleysis eru áætluð tæpir 57 milljarðar kr. Útgjöldin hækka um tæpa
    7,8 milljarða kr. milli ára að meðtöldum launa- og verðlagsbreytingum. Þar
    munar mest um 6,5 milljarða aukningu vegna atvinnuleysisbóta. Sú
    fjárveiting byggist á uppfærðri þjóðhagsspá og tekur mið af þróun
    atvinnuleysis og fjölgun fólks á vinnufærum aldri. Samhliða þessu verður
    lögð áhersla á snemmtækan og einstaklingsmiðaðan stuðning við
    atvinnuleitendur til að draga úr langtímaatvinnuleysi. Þegar eru hafnar
    aðgerðir á vegum Vinnumálastofnunar til að draga úr atvinnuleysi og útlit
    er fyrir að þær muni skila góðum árangri. Sérstaklega verður unnið að því
    að efla úrræði fyrir fólk með skerta starfsgetu. Til þess bætast við 100
    millj. kr. til að styðja atvinnurekendur við að ráða fólk með skerta
    starfsgetu og fjölga hlutastörfum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Fjárheimild Fæðingarorlofssjóðs árið 2027 er
    áætluð tæpir 35,7 milljarðar kr. og hækkar um 6,9 milljarða frá gildandi
    fjárlögum. Þar af má rekja 5,4 milljarða til fjölgunar barna, aukinnar
    orlofstöku, hækkandi meðaltekna foreldra og breyttra þjóðhagsforsendna. Þá
    bætast við 1,4 milljarðar vegna hækkunar hámarksgreiðslna úr
    Fæðingarorlofssjóði. Við munum verja rúmum 22 milljörðum til húsnæðis- og
    skipulagsmála. Meðal helstu verkefna ársins eru heildarendurskoðun almenna
    íbúðakerfisins, breytingar sem ætlað er að styrkja stöðu leigjenda og
    breytingar til að einfalda uppbyggingu húsnæðis. Stofnframlög til almennra
    íbúða nema 4,5 milljörðum árið 2027. Lækkun fjárheimilda um 3 milljarða
    frá gildandi fjárlögum felur ekki í sér að dregið sé úr markmiðum
    stjórnvalda um uppbyggingu almennra leiguíbúða. Hún endurspeglar
    raunverulegan framkvæmdahraða og þá staðreynd að fyrri fjárheimildir hafa
    ekki nýst að fullu. Áherslan er nú á að þær fjárheimildir sem veittar eru
    nýtist til fulls og leiði til raunverulegrar uppbyggingar. Samhliða verður
    einmitt unnið að því að ryðja úr vegi hindrunum í uppbyggingu, m.a. með
    samstarfi við sveitarfélög um lóðaframboð, einföldun regluverks og
    heildarendurskoðun almenna íbúðakerfisins. Við þurfum að fá sveitarfélögin
    í lið með okkur svo hægt sé að byggja almennar íbúðir. Það hefur ekki
    gengið nógu vel hingað til og félög sem byggja óhagnaðardrifið
    leiguhúsnæði eiga erfitt með að finna hentugar lóðir til uppbyggingar.
    Takist að hraða verkefnum og nýta fjárheimildina að fullu verður staðan
    metin að nýju í ljósi eftirspurnar og verkefna sem tilbúin verða til
    framkvæmda.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég hef nú farið yfir það helsta frá félags- og
    húsnæðismálaráðuneytinu sem fram kemur í frumvarpi til fjárlaga árið 2027.
    Ég bind vonir við gott og farsælt samstarf við hv. þingmenn um þessi
    mikilvægu velferðar- og húsnæðismál á komandi þingvetri.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>