<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T14:16:58" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:19:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:16:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna, það
    er gott að hæstv. ráðherra er kominn á fætur, við söknuðum hans fyrir
    helgi en það er nú allt í lagi, enda er hann búinn að ná sér af pestinni.
    En, virðulegi forseti, hæstv. ráðherra heldur utan um málaflokk sem er
    mikilvægur og snýr m.a. að öryrkjum. Það vakti athygli mína að á síðasta
    kjörtímabili sagði formaður Flokks fólksins í umræðum í þinginu 22. júní
    2024, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/raeda/154/rad20240622T154708.html-->

    <ns:mgr>„Þetta frumvarp ber engu að síður með sér þá lítilsvirðingu og þá
    ítrekuðu aðför sem viðhöfð hefur verið hér gegn öryrkjum þessa lands.Þetta
    frumvarp ber engu að síður með sér þá lítilsvirðingu og þá ítrekuðu aðferð
    sem viðhöfð hefur verið hér gegn öryrkjum þessa lands. […] Það sem þau
    kalla hér í dag virknistyrk er ekkert annað en starfsgetumat, hvorki meira
    né minna. […] Þetta almannatryggingafrumvarp sem við erum að tala um hér
    og á að auka svo mikið framfærslugetu öryrkja — alveg 385.000 kr.,
    hallelúja, fyrir skatt. […] En við í Flokki fólksins munum aldrei, aldrei
    vera á grænum takka við þetta frumvarp.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eftir að formaður flokksins varð ráðherra, sagði hún, með leyfi
    forseta:</ns:mgr>

    <ns:mgr>„Nýtt kerfi er betra, manneskjulegra og sanngjarnara. Við tökum
    núna betur utan um fólkið okkar og þann mannauð sem í því býr. Aukningin
    til öryrkja er 18.000 milljónir króna á ári sem eru mestu kjarabætur sem
    þessi hópur hefur fengið í áratugi. Ég þekki af eigin raun hversu
    óréttlátt og flókið gamla kerfið var og er afar stolt á þessum
    tímamótum.“</ns:mgr>

    <!--https://www.visir.is/g/20252769820d/mot-maelti-nyja-kerfinu-i-fyrra-en-fagnadi-thvi-i-dag-->

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er svolítill munur þarna á, hvað var sagt
    fyrir kosningar og svo eftir kosningar. Nú fer Flokkur fólksins með þennan
    málaflokk. Hver er skoðun Flokks fólksins? Er það skoðun flokksins fyrir
    kosningar eða eftir kosningar?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>