<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T14:19:19" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:20:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:19:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það er
    alveg rétt að Flokkur fólksins og fleiri höfðu verulegar áhyggjur af þeim
    breytingum sem voru fyrirhugaðar á almannatryggingakerfinu á sínum tíma.
    Það laut t.d. að starfsgetumatinu og áhyggjum ekkert ósvipuðum þeim sem
    voru t.d. í Bretlandi á sínum tíma þar sem niðurstaðan var að fólki var í
    sjálfu sér gert að finna starf við hæfi sem það gat jafnvel ekki unnið eða
    starfið var ekki til. En það voru auðvitað gerðar og það hafa verið gerðar
    ákveðnar breytingar í þessari vegferð sem gera það að verkum að viðhorf
    míns flokks og okkar til nýs kerfis hefur breyst. Það voru mikilvægar
    breytingar á frumvarpinu sjálfu og sömuleiðis í gegnum
    reglugerðarbreytingar. Þannig að þegar allt kemur til alls þá tel ég að
    breytingarnar hafi verið til góða. Eftir þær breytingar og þær
    reglugerðarbreytingar sem gerðar hafa verið hefur dregið úr þeim áhyggjum
    sem við höfðum á sínum tíma.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>