<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T14:20:45" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:22:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:20:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er ekki svo gott í okkar þjóðfélagi að
    ráðherrar geti breytt lögum með reglugerðum. Flokkur fólksins greiddi ekki
    atkvæði með þessu og formaðurinn sagði: Aldrei, aldrei vera á grænum takka
    við þetta frumvarp og kallaði þetta lítilsvirðingu og ítrekaða aðför. En
    núna segir formaðurinn, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--https://island.is/frett/nytt-ororku-og-endurhaefingarkerfi-tekid-vid-01-09-2025-->

    <ns:mgr>„Nýtt kerfi er betra, manneskjulegra og sanngjarnara. Við tökum
    núna betur utan um fólkið okkar og þann mannauð sem í því býr. Aukningin
    til öryrkja er 18.000 milljónir króna á ári sem eru mestu kjarabætur sem
    þessi hópur hefur fengið í áratugi.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Flokkur fólksins verður bara að koma hreint
    fram í þessu máli. Þið breyttuð ekki lögunum með reglugerðum. Það er ekki
    þannig. Ef þið hafið breytt lögunum þannig í grundvallaratriðum þá er það
    einfaldlega ólöglegt og ég veit ekki til þess að þið hafið gert það.
    <ns:bjalla/> Vill Flokkur fólksins ekki bara koma hreint fram í þessu
    máli? Annaðhvort eruð þið búin að skipta um skoðun eða þið höfðuð rangt
    fyrir ykkur, <ns:bjalla/> nú, eða þá að þið hljótið að boða einhverjar
    breytingar á þessu máli. Þá er ég að tala um grundvallarbreytingar því að
    gagnrýnin var ekkert bara pínu áhyggjur eins og ég las upp hér
    áðan.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="BHar"> Forseti minnir hv. þingmenn á að virða
    tímamörkin.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>