<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T14:23:14" skst="KÞS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:25:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:23:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna.
    Hér erum við að ræða frumvarp til fjárlaga og það fyrsta hallalausa síðan
    2017–2018. Þegar ég fletti fjárlögunum blasa við annars vegar styrkleikar
    og hins vegar veikleikar í rekstri ríkissjóðs. Ég get ekki annað en nefnt
    skuldastöðu ríkissjóðs og þær himinháu vaxtagreiðslur sem sjóðurinn ber á
    hverju ári og gert er ráð fyrir 166 milljörðum kr. í vaxtagreiðslur. Við
    trónum á toppi Evrópulanda í vaxtabyrði ríkissjóðs en erum um miðbik hvað
    varðar skuldsetningu ríkissjóðs af vergri landsframleiðslu. Þetta þýðir
    einfaldlega að ríkissjóður greiðir mun hærri vexti af hverri krónu en t.d.
    löndin í Evrópusambandinu. Það væri sannarlega hægt að framkvæma margt
    fyrir þessar upphæðir og því er mjög mikilvægt að ná að lækka vexti hér á
    landi á þann hátt að hægt verði að nota fjármuni fyrir fólkið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Á síðustu tveimur löggjafarþingum höfum við gert mikilvægar
    breytingar sem snúa að íbúðamarkaði og breytingar á stofnframlögum til
    almenna íbúðakerfisins, skráningum á leigusamningum, takmarkandi
    breytingar á útleigu í Airbnb og styrkingu hlutdeildarlánakerfisins, svo
    dæmi séu nefnd. Allt hefur þetta jákvæð áhrif á venjulegt fólk sem vill
    leigja eða kaupa íbúðir til búsetu en húsnæði er auðvitað fyrst og fremst,
    og á að vera, heimili fólks en ekki fjárfestingarvara.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hef hins vegar miklar áhyggjur af því hvort sveitarfélög muni
    taka þátt í að styðja almenna íbúðakerfið og samfélagsleg verkefni. Við
    höfum séð á undanförnum árum að framboð hefur verið æðimisjafnt á milli
    sveitarfélaga og í síðustu sveitarstjórnarkosningum var þetta markvisst
    talað niður af ýmsum stjórnmálaflokkum. Mig langar því að spyrja hæstv.
    ráðherra hvort hann deili þessum áhyggjum með mér af stuðningi
    sveitarfélaganna og kerfisins í heild og hvort við þurfum að bregðast við
    með öðrum aðgerðum til að ýta undir þetta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>