<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T14:25:32" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:27:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:25:32">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég deili
    vissulega þessum áhyggjum hv. þingmanns af verkefnastöðu félaga sem byggja
    inn í almenna íbúðakerfið og er verulega hugsi yfir viðhorfi margra
    sveitarfélaga til þessarar mikilvægu uppbyggingar sem er í sjálfu sér ekki
    líkt því eins mikil og stóð til þegar kerfinu var komið á á sínum tíma.
    Engu að síður höfum við átt ágætisfundi og samtöl við sveitarfélögin um að
    gera bragarbót á þessu, hvort sem það mun skila einhverjum raunverulegum
    árangri þar sem lóðaskortur hefur vissulega verið helsta ástæða þess að
    ekki hefur tekist að byggja nægilega mikið og nýta þær fjárheimildir sem
    hafa verið til stofnframlaga. Við erum að skoða fleiri leiðir, hvernig við
    getum brugðist við því að koma þessum stofnframlögum út og koma með
    alvöruinnspýtingu í kerfið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eitt af því sem við munum gera og er komið á þingmálaskrá eru
    breytingar á skipulagslögum sem snúa að vaxtarmörkum höfuðborgarsvæðisins
    og ættu þá að gefa sveitarfélögum meira rými til þess að stækka og bjóða
    upp á meira byggingarland. Ég leyfi mér að vona að það verði til þess að
    mun fleiri lóðir standi til boða inn í almenna íbúðakerfið en verið
    hefur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>