<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T14:27:40" skst="KÞS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:28:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:27:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég vil
    taka fram að ég tel þetta rétta forgangsröðun fjármagns, að styrkja og
    styðja við þá hópa sem minnst hafa á milli handanna í samfélaginu, og við
    erum auðvitað norrænt velferðarsamfélag þar sem stuðningskerfin eru notuð
    til þess að létta undir og jafna stöðu fólks.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Annað sem mig langar að nefna er, og ég fagna, að við sjáum núna
    stórt skref stigið í fjárlögunum varðandi það að draga úr skerðingum
    almannatrygginga þar sem milljarði er ráðstafað í að hækka mörk skerðingar
    um 5.000 kr. á mánuði og innan tíðar verðum við komin í 60.000 kr. á þeim
    stað. Þetta skiptir máli. Skrefin mættu auðvitað vera stærri og vonandi
    tekst okkur að stíga fleiri skref í þessa átt en það er augljóst að
    aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa verið jákvæðar til þess að styðja við
    markaðinn, styðja við fólk og auðvitað breyta því að húsnæði sé notað til
    íbúðar en ekki fjárfestinga. Við þurfum að halda áfram á þeirri braut að
    mínu mati.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>