<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T14:29:07" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:30:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:29:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég deili áhyggjum hv. þingmanns af stöðunni. Við erum
    með allt of mikið af húsnæði sem stendur tómt og nánast stjórnlausan
    leigumarkað. Það er sem betur fer á þingmálaskrá töluvert af aðgerðum sem
    munu koma leigjendum sérstaklega vel. Ein af þeim aðgerðum tengist
    auðvitað líka stöðunni á vinnumarkaði, þ.e. að banna mánaðarlega
    vísitölutengingu leigu. Svo eru til skoðunar fjölmargar aðrar aðgerðir sem
    snúa að þeirri stöðu á íbúðamarkaði núna þar sem markaðurinn hefur ekki
    verið að byggja það húsnæði sem eftirspurn er eftir og verður gaman að
    geta farið yfir það á þessum þingvetri.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>