<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T14:30:23" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:32:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:30:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langar að nota þetta tækifæri til að
    spyrja hæstv. ráðherra almennt um framtíðarsýn hans með tilliti til
    efnahagslífsins almennt hér, hverjar hann telji helstu áskoranir í
    efnahagslífinu með tilliti til þróunar ríkisútgjalda svona almennt en
    kannski sérstaklega þegar kemur að hans málaflokki. Ég get sagt að frá
    mínum bæjardyrum séð hef ég miklar áhyggjur af almannatryggingakerfinu
    okkar öllu sem slíku, bótagreiðslum af ýmsu tagi, og þróun þess. Ég vil
    nefna hér að það er oft erfitt að bera saman á milli ára vegna þess að af
    og til er breytt um hugtök í þessum málum þannig að árin verða svo lítið
    samanburðarhæf þegar búið er að færa t.d. bótaflokka á milli og skíra þá
    upp á nýtt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En eins og þetta horfir við mér í dag í þessu fjárlagafrumvarpi má
    segja að í grófum dráttum verði ríkisstjórnin að gera ráð fyrir að
    ríkissjóður þurfi að greiða út 337 milljarða kr. í bætur af ýmsu tagi og
    fjöldi þeirra sem fá greiddar bætur á Íslandi er um 77.000 manns. Inni í
    þeirri tölu eru auðvitað ellilífeyrisþegar sem enn þá fá greitt frá
    almannatryggingum, sem vonandi fer nú að fækka og menn reiða sig frekar á
    lífeyrissjóðina, en ef við tökum þá út sem þiggja ellilífeyrisbætur eru
    það 42.000 manns. En eftir standa 18.000 manns á örorkulífeyri og yfir
    7.000 á endurhæfingarlífeyri.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hefur hæstv. ráðherra áhyggjur af þessari þróun? Ef hann hefur
    það, er eitthvað í farvatninu <ns:bjalla/> af hans hálfu til að stemma
    stigu við þessari þróun og einhverjar breytingar sem við eigum von á að
    sjá hér í þinginu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>