<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T14:32:51" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:35:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:32:51">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég held að
    almannatryggingakerfið okkar sé á ágætis stað. Það voru gerðar mjög stórar
    og miklar kerfisbreytingar á almannatryggingakerfinu 2024 og þær
    breytingar hafa auðvitað ekki alveg komið að fullu í ljós. Við sjáum
    auðvitað mikla aukningu á endurhæfingarlífeyrisgreiðslum, sem eru hluti af
    því að reyna að koma fólki aftur og hraðar til virkni, og það er margt sem
    bendir til þess að þetta gangi alveg ágætlega. Okkur hefur farið mjög
    fjölgandi þannig að málaflokkurinn stækkar auðvitað í takt við
    það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður spurði um mína sýn á stöðu efnahagsmála og helstu
    áherslur. Þær hafa verið og eru alltaf mjög skýrar og tengjast í sjálfu
    sér húsnæðismálunum, húsnæðiskostnaði fólks, hvort sem það er húsaleiga
    eða húsnæðislánin. Þetta er að mínu mati eitt stærsta kjaramál samtímans,
    að fólk hafi öruggt þak yfir höfuðið og hafi sömuleiðis borð fyrir báru
    til að geta leyft sér eitthvað meira en að kaupa nauðsynjar eftir að
    húsaleiga eða lánin eru greidd. Sú vinna sem við höfum verið að vinna þar
    felur m.a. í sér endurskoðun á húsnæðislánakerfinu. Þar er starfshópur sem
    er að skila af sér síðari hluta vinnunnar í síðasta lagi í mars á næsta
    ári. Sömuleiðis er líka heildarendurskoðun á húsnæðisbótakerfunum okkar og
    síðan þurfum við auðvitað að fylgjast mjög vel með og hafa allt eftirlit
    eins og best verður á kosið til að koma í veg fyrir misnotkun á kerfinu
    eins og alls staðar er.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>