<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T14:35:08" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:36:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:35:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég deili ekki þessari björtu sýn eða
    áhyggjuleysi hæstv. ráðherra af fyrirkomulagi almannatrygginga og
    þróuninni sem þar á sér stað. Til þess að setja þetta aðeins í samhengi af
    því að ég nefndi þessa tölu: Frumvarpið gerir ráð fyrir 337 milljörðum kr.
    í útgreiddar bætur af ýmsu tagi. Þá er kannski rétt að setja það í
    samhengi við tekjur ríkissjóðs af vinnandi fólki í dag. Tekjuskattur
    einstaklinga og staðgreiðsla eiga að skila í ríkissjóð 325 milljörðum kr.
    en bæturnar eru 337 milljarðar kr. Hefur hæstv. ráðherra ekki áhyggjur af
    þessu? Að vinnandi fólk nái ekki einu sinni að afla ríkissjóði tekna til
    að greiða út bætur?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hef af þessu mjög miklar áhyggjur og ég mun beita mér á þessum
    þingvetri fyrir því að gerð verði úttekt á þessum málum í háttvirtri
    velferðarnefnd og með aðkomu hæstv. ráðherra líka. Ég óska eftir því að
    hæstv. ráðherra <ns:bjalla/> taki vel í þá umleitan mína að standa fyrir
    reglulegum skýrslum um m.a. þær breytingar á almannatryggingakerfinu sem
    gerðar voru árið 2024, hverju þær hafi skilað og hverju þær skili núna ár
    frá ári.</ns:mgr>

    <!--RÞI nefnir breytingar 2024 í svarinu á undan, en einnig voru gerðar breytingar á kerfinu 2004. Spurning hvort hv. þm. á við./sendi SÁA línu/st./svar kom, ætlaði að segja 2024/st.-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>