<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T14:36:42" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:37:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:36:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína spurningu. Ég deili
    ekki sömu áhyggjum og hv. þingmaður hefur varðandi almannatryggingakerfið.
    Ég tel miklu mikilvægara að við séum með öflugt almannatryggingakerfi sem
    grípur fólk ef það lendir í áföllum, veikist illa eða missir atvinnu. Við
    erum með Fæðingarorlofssjóð og styðjum við barnafjölskyldur og foreldra,
    styðjum við tekjulága. Ég er bara þeirrar skoðunar, og verð þá bara að
    vera ósammála hv. þingmanni, að ég tel að einmitt þetta grunnkerfi okkar
    og almannatryggingakerfi sé með þeim hætti sem það er og það sé full
    ástæða til að efla það frekar en að veikja. Við fylgjumst mjög vel með
    þróuninni eftir breytingar á almannatryggingakerfinu og erum að fylgjast
    með því í rauntíma og ég get fullvissað hv. þingmann um að við séum með
    augun á þeim bolta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>