<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T14:37:57" skst="GrímG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:39:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:37:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hæstv. félags- og
    húsnæðismálaráðherra, Ragnari Þór Ingólfssyni, fyrir hans ræðu og þeim hv.
    þingmönnum sem tekið hafa til máls um málaflokk ráðherrans. Fæðingarorlof
    er ekki aðeins stuðningur við foreldra og börn heldur mikilvægur
    jafnréttismálaflokkur. Viðeigandi og sanngjarnt fæðingarorlof stuðlar að
    jafnari ábyrgð foreldra, styrkir stöðu kvenna á vinnumarkaði og dregur úr
    því að barneignir hafi neikvæð áhrif á starfsþróun og framtíðartekjur
    kvenna. Jafnframt skiptir þátttaka á vinnumarkaði og trygging
    lífeyrisréttinda miklu fyrir fjárhagslegt sjálfstæði kvenna til lengri
    tíma. Ég vil líka draga það fram að þátttaka feðra í uppeldi barna sinna
    þegar þau eru ung styrkir samband föður og barns og því er mikilvægt að
    feður taki sinn hlut í fæðingarorlofi og njóti samvista við börn
    sín.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir verulegri
    aukningu í fjárveitingum til fæðingarorlofs. Mín spurning til ráðherrans
    er þessi: Hvernig hyggst hæstv. ráðherra nýta þessa auknu fjármuni til að
    styrkja fæðingarorlofskerfið enn frekar sem jafnréttisúrræði og tryggja
    m.a. að foreldrar, einkum konur, haldi sterkri stöðu á vinnumarkaði og
    byggi upp fullnægjandi lífeyrisréttindi?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>