<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T14:39:30" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:41:04 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:39:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans spurningu. Ég er
    alveg hjartanlega sammála hv. þingmanni um mikilvægi þess að efla
    Fæðingarorlofssjóð og styðja við barnafjölskyldur og foreldra. Það hafa
    verið gerðar mjög mikilvægar breytingar á Fæðingarorlofssjóði, nú síðast
    varðandi afturvirkni breytinga, að hún taki til allra þeirra sem eru í
    kerfinu. Það sem við erum að skoða, og erum með í stöðugri skoðun, er hvað
    við getum gert til að gera enn betur. Við bættum stöðu fjölburaforeldra á
    síðasta þingi, sömuleiðis sorgarleyfi og það er fullt tilefni til að halda
    áfram þessari vinnu. Kannski þær breytingar sem ég sé nærtækastar er að
    kerfið hafi meiri sveigjanleika, t.d. gagnvart foreldrum sem eru áætlaðir
    inn í kerfið með full réttindi en kannski sökum þess að barn fæðist fyrir
    tímann þá falla niður réttindi eða þau eru ekki eins og lagt var upp með
    eða voru fyrirsjáanleg. Það er t.d. á meðal þeirra breytinga sem ég sé
    fyrir mér að væru næstar í röðinni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>