<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T14:42:03" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:43:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:42:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurninguna. Ég tel
    að fjárlagafrumvarpið endurspegli vel áherslur ríkisstjórnarinnar og þá
    sérstaklega hækkun inn í almannatryggingakerfið sem mun tengjast
    launavísitölu. Áætlaðar hækkanir þar eru um 7,3% um næstu áramót. Þetta
    styður mjög vel við stefnu ríkisstjórnarinnar, að sú kjaragliðnun sem
    hefur verið undanfarin ár og áratugi í þessum málaflokki er stöðvuð. Af
    hverju tala ég um þetta sérstaklega? Vegna þess að okkar sjónir eiga
    auðvitað að beinast að þeim fjölskyldum sem eru tekjulágar, búa kannski
    ekki við sömu tækifæri og aðrir í þessu samfélagi og það erum við svo
    sannarlega að gera. Ég held að ég taki það helst út úr
    fjárlagafrumvarpinu. Það er þessi aukning inn í Fæðingarorlofssjóð og líka
    hækkun í almannatryggingakerfið tengd launavísitölu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>