<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T14:43:28" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:45:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:43:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hans ræðu. Mig
    langar að beina orðum mínum aðeins að stöðu ungs fólks á húsnæðismarkaði.
    Í fjárlagafrumvarpinu er fjórum mikilvægum þáttum húsnæðisstuðnings
    breytt, öllum í sömu átt. Vaxtabætur eru felldar niður frá áramótum.
    Endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði lækkar úr 35%
    niður í 20% sem eykur kostnað við byggingu og endurbætur. Fjármunir til
    hlutdeildarlána eru takmarkaðir um 5,5 milljarða kr. og stofnframlög til
    almennra íbúða lækka um 3 milljarða. Vissulega hefur dregið úr raunverði
    íbúðarhúsnæðis en vextir eru enn gríðarlega háir og greiðslubyrðin sífellt
    að þyngjast. Einmitt þess vegna gæti skapast tækifæri sem ekki hefur
    gefist í mörg ár. Þegar verð lækkar og vonir standa til þess að vextir
    lækki þá kemst ungt fólk lengra fyrir hverja krónu í stuðningi. Í stað
    þess að nýta það tækifæri dregur ríkisstjórnin úr stuðningi á öllum
    vígstöðvum og eykur um leið kostnað við uppbyggingu íbúða. Hæstv. ráðherra
    þekkir þessa stöðu vel því þegar hann sinnti því að vera formaður VR
    krafðist hann þess ásamt öðrum verkalýðsfélögum að stjórnvöld kæmu að
    borðinu vegna hárra vaxta og þungrar greiðslubyrði, sagði húsnæðismálin
    stærsta málið og hér áðan eitt stærsta kjaramálið og kallaði eftir
    trúverðugri áætlun stjórnvalda. Þáverandi ríkisstjórn brást m.a. við þessu
    í kjarasamningum 2024 með sérstökum vaxtastuðningi sem nam 6 milljörðum
    kr. Nú er hæstv. ráðherra sjálfur kominn í stöðu til að hafa áhrif,
    raunveruleg áhrif á þessi mál, en vaxtabætur eru felldar niður á meðan
    hann sinnir því ráðherraembætti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Til hvaða beinu aðgerða ætlar
    ríkisstjórnin að grípa til að hjálpa ungu fólki að eignast sína fyrstu
    íbúð miðað við núverandi vaxtastig? Ég er ekki að tala um eitthvað til
    næstu ára heldur núverandi vaxtastig. Og hvaða úrræði stendur t.d. 21 árs
    konu til boða <ns:bjalla/> sem kaupir 20 ára gamla íbúð á
    höfuðborgarsvæðinu og á ekki rétt á hlutdeildarláni og fær heldur ekki
    vaxtabætur?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>