<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T14:46:05" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:48:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:46:05">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ef ég
    fer fyrst í stofnframlögin, sem vissulega lækka um 3 milljarða, þá er
    vandinn ekki í sjálfu sér fjármögnun kerfisins heldur fyrst og fremst
    viðvarandi lóðaskortur sem hefur valdið því að við höfum náð að byggja inn
    í almenna íbúðakerfið. Ríkisstjórnin mun bregðast við ef eftirspurnin
    eykst aftur, ef okkur gengur betur að fá byggingarland og lóðir fyrir
    félög sem starfa innan þessa kerfis sem sannarlega hefur reynst björg í bú
    fyrir þá sem eru tekjulágir, ungar fjölskyldur eða þá sem vilja koma inn á
    húsnæðismarkaðinn síðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi hlutdeildarlánakerfið þá gerðum við gríðarlega mikilvægar
    breytingar og ég er alveg þakklátur stjórnarandstöðunni fyrir þann
    skilning sem hún sýndi málinu, það náðist í gegn núna í desember
    síðastliðnum. Það hefur ekki staðið á viðbrögðum þar sem ásóknin og
    afgreiðsla hlutdeildarlána inni í kerfinu hefur sjaldan verið meiri og það
    er til skoðunar hvernig við getum eflt það enn frekar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi hlutdeildarlán á eldri íbúðir þá er það mín skoðun — og
    þar sem ég kom að því að búa þetta kerfi til á sínum tíma í starfshópi
    þegar ég var í öðru starfi innan verkalýðshreyfingarinnar þá var það mjög
    skýrt, sérstaklega í þeirri fyrirmynd sem við vorum að horfa til, bæði í
    Skotlandi og Bretlandi, að það að opna fyrir hlutdeildarlán á eldri íbúðir
    myndi hafa neikvæð áhrif á markaðinn, þ.e. það yrði til hækkunar ef
    eftirspurninni myndi ekki fylgja framboð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég kem kannski inn á fleiri atriði í mínu seinna svari.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>