<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T14:48:15" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:49:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:48:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Hins vegar svaraði
    hann ekki endilega spurningunni minni þegar kemur að ungu konunni sem er
    að kaupa sér eldri íbúð. Hún fær þar af leiðandi ekki hlutdeildarlán en
    hún missir vaxtabæturnar núna um áramótin. Það verða ekki greiddar
    vaxtabætur. Hvaða beini stuðningur stendur henni þá til boða við það háa
    vaxtastig sem er í dag í ljósi þess að ríkisstjórnin hefur fallið í því
    verkefni að ná tökum á verðbólgu og vöxtum í landinu og heimilin búa við
    himinhá vaxtagjöld? </ns:mgr>

    <ns:mgr>Þegar hæstv. ráðherra var formaður VR taldi hann að stjórnvöld
    yrðu að koma að borðinu vegna vaxtabyrðar heimilanna. Því spyr ég aftur:
    Ætlar ráðherrann að gera eitthvað slíkt? Ef svo er, hvenær og hversu
    miklum fjármunum verður þá varið til þess? Hann kom inn á stofnframlögin
    áðan og vísaði til þess að það væri verið að draga úr þeim stuðningi vegna
    lóðaskorts en ríkisstjórnin myndi bregðast við ef það kæmi nægjanlegt
    lóðaframboð. Í ljósi stöðunnar og þess að það eigi að skila hallalausum
    fjárlögum, er raunhæft að koma til móts við slíkt ef lóðaframboðið
    eykst?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>