<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T14:49:36" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:51:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:49:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ítrekaða spurningu
    og nýja spurningu. Varðandi lóðaframboð og almenna íbúðakerfið þá hef ég
    ágætisinnsýn í byggingarmarkaðinn og hvað tekur langan tíma að byggja upp
    íbúðir, þar sem ég kom að uppbyggingu Bjargs íbúðafélags á vettvangi
    verkalýðshreyfingarinnar á sínum tíma. Það er alveg ljóst að ef aukið
    lóðaframboð verður til þess að það sé hægt að byggja meira inn í kerfið þá
    muni það ekki hafa áhrif á stofnframlög innan kerfisins fyrr en eftir
    mögulega einhver ár héðan í frá talið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi hina spurninguna: Við erum með í endurskoðun nýtt eða
    bætt húsnæðislánakerfi þar sem vaxtabótastuðningurinn hefur einfaldlega
    ekki virkað sem skyldi og starfshópur um það á að skila af sér innan
    skamms eða fyrir mars á næsta ári. Það eru gerðar áætlanir, ég hef sjálfur
    gert samninga um auknar vaxtabætur í gegnum kjarasamninga upp á einhverja
    milljarða sem verða síðan bara brot og brot af þeirri upphæð <ns:bjalla/>
    þegar upp er staðið vegna þeirra innbyrðisskerðinga í kerfinu. Við þurfum
    að finna nýjar leiðir, nýjar lausnir í þessu <ns:bjalla/> og það er full
    vinna í gangi í því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>