<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T14:51:12" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:53:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:51:12">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. félags- og
    húsnæðismálaráðherra fyrir sína framsögu í dag og þátttöku í umræðum hér í
    þingsal. Ég er kannski á svipuðum stað og hv. þingmenn Guðlaugur Þór
    Þórðarson og Ingibjörg Isaksen. Ég er að reyna að átta mig á því fyrir
    hvað Flokkur fólksins stendur. Þá loksins þegar hann er kominn í þessa
    stöðu, að geta haft áhrif og situr í ríkisstjórn — hv. þm. Guðlaugur Þór
    Þórðarson talaði hér um skoðanir Flokks fólksins á nýja örorkukerfinu og
    hv. þm. Ingibjörg Isaksen um húsnæðisstuðning, þar sem orð forsvarsmanna
    flokksins virðast einhvern veginn hafa breyst töluvert. Ég vildi nefnilega
    halda áfram að ræða um stöðu barnafólks í aðdraganda síðustu
    alþingiskosninga. Þá lagði Flokkur fólksins einmitt áherslu á að hækka
    barnabætur. En nú þegar flokkurinn er kominn við ríkisstjórnarborðið og
    leggur fram þessi fjárlög kemur sem sagt í ljós annað árið í röð að
    barnabæturnar hækka ekki um krónu. Ég set þetta í samhengi við orð hæstv.
    forsætisráðherra sem var tíðrætt um er hún sat í stjórnarandstöðu og
    vitnaði þar í bandarískan stjórnmálamann sem sagði: Sýndu mér fjárlögin
    þín og ég skal segja þér fyrir hvað þú stendur. Því spyr ég hæstv. félags-
    og húsnæðismálaráðherra: Fyrir hvað stendur þú hvað þetta varðar? Er
    einhver ástæða fyrir því að barnabæturnar hafa ekki hækkað frá því að
    þessi ríkisstjórn tekur við völdum? Er þetta áhersluatriði Flokks fólksins
    eða er eitthvað annað sem veldur þessari forgangsröðun?</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="BergÓ">Forseti minnir hv. þingmenn á að ávarpa
    ráðherra með réttum hætti.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>