<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T14:53:48" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:55:37 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:53:48">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna.
    Fyrir hvað stendur Flokkur fólksins og hv. þingmaður? Jú, fyrir þau mál
    sem við höfum barist fyrir. Vissulega eru barnabætur ekki að hækka og það
    hefði verið æskilegt að ná að hækka þær líka. En við höfum auðvitað gert
    mjög margt sem styður barnafjölskyldur. Við höfum gert margar mjög
    kostnaðarsamar og mikilvægar breytingar á fæðingarorlofskerfinu, m.a.
    komið á sorgarleyfi, lengt fæðingarorlofsgreiðslur, tekjutengingar, þar er
    gríðarleg aukning. Þetta eru áherslurnar núna. Við höfum gert mikilvægar
    breytingar fyrir ungar barnafjölskyldur varðandi hlutdeildarlánakerfið
    eins og ég kom inn á í ræðu minni áðan. Eitt sem ég kom ekki inn á eru
    t.d. heimildir til að gera samninga við uppbyggingaraðila inn í
    hlutdeildarlánakerfið. Fyrstu samningar sem hafa verið gerðir hingað til
    urðu að veruleika síðasta vor. Síðan auðvitað almannatryggingakerfið — það
    hefur verið, ef ég má nota það orð, DNA hjá Flokki fólksins að styðja
    tekjulágar fjölskyldur, þá sem höllustum fæti standa í okkar samfélagi. Ég
    held að hvorki hv. þingmaður né aðrir í þessu samfélagi geti séð það eða
    fundið það út að við höfum ekki staðið við þær megináherslur sem
    flokkurinn hefur barist fyrir frá því hann var stofnaður.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>