<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T14:55:42" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:56:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:55:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra
    fyrir andsvarið en er þó auðvitað bara engu nær. Ég er að reyna að draga
    fram einhvern lit eða ástæður fyrir þeirri forgangsröðun sem birtist í
    fjárlögunum hvað barnabæturnar varðar, hverju það sætir annað árið í röð
    að þær hækka ekki um krónu. Yfir tveggja ára tímabil er um 9% raunlækkun
    að ræða. Ég er að spyrja hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra hverju
    þetta sætir. Hver stýrir þessari forgangsröðun? Ég hlýddi á hæstv.
    forsætisráðherra segja hér í pontu fyrr í dag að hún hefði viljað gera
    betur hvað barnabæturnar varðar og það væri, ef ég heyrði rétt, til
    skoðunar að breyta þessu jafnvel eitthvað, án þess að ég vilji fara
    nákvæmlega með það. Eru þetta áherslur Flokks fólksins, Samfylkingarinnar
    eða Viðreisnar?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>