<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T14:56:54" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 14:58:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:56:54">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurningu.
    Nú heyra barnabæturnar undir fjármálaráðuneytið en ekki þann málaflokk sem
    ég er að svara fyrir í fjárlögum í dag. Engu að síður vil ég taka undir
    með hv. þingmanni, ég hefði viljað sjá þessar bætur hækka. Hvað varðar þá
    málaflokka sem heyra undir mitt ráðuneyti tel ég okkur vera að gera góða
    hluti og styðja vel þá hópa sem heyra undir okkur og mitt ráðuneyti. Ég
    hef komið inn á í ræðum mínum oftar en einu sinni í dag að ég tel að besta
    kjarabótin fyrir fjölskyldur snerti stöðuna á húsnæðismarkaði;
    húsnæðiskostnaður almennt, hvort sem það er húsaleiga eða húsnæðislánin.
    Það er, eins og ég kom inn á áðan, vinna í gangi í ráðuneytinu við
    tillögur að breyttri nálgun og nýju húsnæðislánakerfi sem starfshópurinn
    mun skila af sér núna í síðasta lagi í mars á næsta ári, sömuleiðis líka
    frekari og mjög mikilvægar breytingar varðandi leigumarkaðinn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>