<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T14:58:20" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:00:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T14:58:20">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það bar vel í veiði hjá mér. Ég fékk annað
    tækifæri til þess að eiga orðastað við hæstv. ráðherra og halda svolítið
    áfram með þá umræðu sem við áttum hér um almannatryggingakerfið. Í seinna
    andsvari sínu nefndi hæstv. ráðherra að hann vildi auðvitað hafa öflugt
    almannatryggingakerfi og sæi þess vegna ekkert að þeirri þróun sem hefur
    verið núna með þessum miklu útgjöldum til bótakerfisins og ég nefndi að
    tekjur ríkissjóðs af vinnandi fólki væru lægri en útgjöld ríkisins af
    bótum almennt, þ.e. tekjur ríkissjóðs af staðgreiðslu og
    tekjuskatti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil hins vegar nefna það líka að ég er sammála hæstv. ráðherra
    um að við þurfum auðvitað að hafa hér öflugt velferðarkerfi. Það er ekki
    samstaða um neitt annað hér í pólitísku samhengi eða í þjóðfélaginu og
    Ísland hefur byggt upp öflugt velferðarkerfi en það má þó ekki verða það
    öflugt að fólk sjái sér hag í að tékka sig inn í velferðarkerfið í stað
    þess að vera á vinnumarkaði. Af því hef ég miklar áhyggjur að það sé að
    gerast. Afleiðing af því snertir fyrst og fremst þá sem þurfa á þessu
    velferðarkerfi að halda, þ.e. þá sem minnst mega sín, þá sem mest þurfa að
    berjast fyrir hag sínum eða framfærslu sinni. Þeir bera skarðan hlut frá
    borði ef þeim fjölgar í þessu kerfi sem í raun þurfa kannski síður á því
    að halda og ég vildi bara árétta þetta. Það er þess vegna sem ég held að
    það þurfi að skoða þetta sérstaklega. Ég nefni sérstaklega fréttir um
    fjölgun erlendra ríkisborgara sem koma hér og hafa aldrei verið á
    íslenskum vinnumarkaði en tékka sig strax inn á framfærslu sveitarfélaga
    og þaðan inn í bótakerfi almannatryggingakerfisins. Hefur hæstv. ráðherra
    ekki áhyggjur af þessari þróun sem fréttir hafa verið fluttar af
    undanfarna daga?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>