<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T15:00:50" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:02:48 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:00:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína spurningu. Ég
    er ekki sammála því að fólk geti tékkað sig inn á almannatryggingakerfið.
    Þetta er yfirleitt mikil þrautaganga sem fólk þarf að fara í gegnum til
    þess að fara á örorku eða eitthvað slíkt og það er svo sannarlega ekki
    val, held ég, í öllum þeim tilfellum sem ég þekki til.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi það mál sem hv. þingmaður er að vísa til um erlenda
    ríkisborgara sem leita til sveitarfélaga eftir framfærslustyrk get ég
    auðvitað ekki svarað því. Við erum með kerfi og ákveðið regluverk þar sem
    réttindi byrja að myndast eftir veru hérna í þrjú ár og full réttindi til
    40 ára, þá eru þetta bara reglur innan kerfisins sem einstaklingar þurfa
    að falla undir eigi þeir rétt á að fá greiðslur. Það sem við höfum verið
    að gera núna, og það er t.d. í samráðsgátt, er reglugerð um ósanngjarna
    byrði. Ég tel að það sé mjög mikilvægt mál, þar sem sveitarfélög geta, ef
    þau meta það sem svo að fólk sé í rauninni eingöngu komið hingað til þess
    að komast inn á bótakerfið, vísað því til Útlendingastofnunar og eftir
    atvikum geti þá Útlendingastofnun tekið ákvörðun varðandi afturköllun á
    dvalarleyfi eða eitthvað slíkt. Þannig að við erum að bregðast við
    ákveðnum þáttum. Þó að ég geti auðvitað ekki tjáð mig um einstaka mál erum
    við að bregðast við í góðri samvinnu við sveitarfélögin.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>