<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T15:02:53" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:04:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:02:53">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langar að leiðrétta misskilning eða að
    minnsta kosti árétta hvernig reglurnar eru varðandi t.d. útlendinga sem
    koma hingað. Það er ekki rétt að þeir þurfi að bíða í þrjú ár til þess að
    fá fjárhagsstyrk frá skattgreiðendum. Fjárhagsstyrk sveitarfélaganna hafa
    menn getað gengið í bara um leið og þeir lenda hafi þeir engar tekjur og
    lendi hér þannig að það eru greinilega fjölmörg dæmi um að útlendingar
    segi sig hér á sveitina. Eftir ákveðinn tíma tekur síðan ríkið
    við.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Stendur hann í þeirri trú að
    allt þetta kerfi okkar sé ekki misnotað, það sé engin misnotkun í þessu
    kerfi? Það kæmi mér á óvart ef hann ætlaði að svara því játandi. En ef
    hann svarar því neitandi eða telur að einhver dæmi séu um misnotkun, telur
    hann þá ekki nauðsynlegt að það sé upplýst um það og að viðvarandi
    rannsókn sé í gangi á mögulegri misnotkun? Ég myndi kalla eftir því að
    hæstv. ráðherra gæfi þinginu skýrslu um þessi atriði núna á þessum
    þingvetri og tel rétt að hæstv. ráðherra undirbúi það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>