<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T15:04:14" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:05:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:04:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari
    spurninguna. Það eru engin kerfi fullkomin eðli málsins samkvæmt og ég mun
    aldrei halda því fram að það sé ekki svindlað í neinum kerfum. Hvort sem
    það er skattkerfið okkar, almannatryggingakerfið eða önnur kerfi þá eru
    engin kerfi sem ég þekki til sem eru fullkomlega skotheld hvað það
    varðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við höfum verið að leggja aukna áherslu á eftirlit. Þegar ég
    talaði um þriggja ára regluna talaði ég um þá reglu eða þau viðmið sem
    heyra undir bætur úr almannatryggingakerfinu. Ég get ekki svarað fyrir
    sveitarfélögin um það hvernig þau mál eru hanteruð. En reglurnar eru
    auðvitað þær varðandi fjárhagsaðstoð að hún fer eftir búsetu þess sem
    kemur til landsins eða býr í viðkomandi sveitarfélagi. Við höfum lagt
    áherslu á aukið eftirlit í almannatryggingakerfinu og nú síðast 2025 var
    staða forstöðumanns eftirlits endurvakin hjá Tryggingastofnun. Það hefur
    orðið til þess að fjöldi mála <ns:bjalla/> sem eru í fasa eftirlitsmála
    hefur sjaldan verið meiri hjá Tryggingastofnun en einmitt í dag.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>