<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T15:05:54" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:08:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:05:54">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra
    fyrir framsöguna og umræðurnar hér í dag og gott að sjá að hann er að
    hressast, gat ekki verið með okkur hér á föstudaginn. Það sem mig langar
    aðeins að velta upp hér eru húsnæðismálin, virðulegur forseti, og byrja á
    því að segja að þegar maður opnar fjárlögin og ætlar að fara að reyna að
    átta sig á því stóra máli, því risastóra máli sem við tölum ítrekað um hér
    á Alþingi, sem er staðan á húsnæðismarkaði, er hvað það er rýr umfjöllun
    um húsnæðisliðinn í fjárlögum. Þetta er um ein síða í fjárlögunum þar sem
    verið er að fjalla um þetta og markmið og mælikvarðarnir settir fram. Mér
    finnst alveg tilefni til þess, virðulegur forseti, að menn setji aðeins
    meira kjöt á beinin fyrir okkur þar til þess að átta okkur á því hvert
    stjórnvöld stefna í þessum málaflokki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að því sögðu langar mig að spyrja hæstv. ráðherra um
    hlutdeildarlánin. Ég sé að hér er ein lína um þau undir markmiði 1:
    Húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum, að hlutdeildarlán
    til fyrstu íbúðarkaupa verði efld enn frekar. Það er ekkert meira sagt um
    þetta. Við höfum enga hugmynd um hvernig á að gera þetta og miðað við þau
    fjárframlög sem fara til húsnæðismála á þessu ári sjáum við að miðað við
    fjárlagaárið 2026–2027 eru framlögin að fara úr 25 milljörðum í tæpa 22,
    niður um rúma 3 milljarða. Þannig að ég velti því fyrir mér, virðulegur
    forseti, hvort hæstv. ráðherra geti svarað mér aðeins varðandi
    hlutdeildarlánin, sérstaklega í ljósi þess að ég sé ekki að það sé gert
    ráð fyrir fjármunum í þau neins staðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>