<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T15:08:23" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:10:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:08:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu.
    Hlutdeildarlánakerfið og þær mikilvægu breytingar sem voru gerðar á því í
    desember síðastliðnum gerðu það að verkum að fjöldi þeirra sem hafa sótt
    um hlutdeildarlán hefur stóraukist og það er fullt tilefni til að skoða
    hvort sú þróun haldi áfram. Við erum ekki búin að fá endanlegt mat á því
    hvað það þurfi mikið inn í kerfið til að það nái að uppfylla allar þær
    umsóknir sem berast inn í það. Þær tölur liggja einfaldlega ekki fyrir.
    Þær þyrftu þá mögulega að koma inn á næsta ári eða í fjárauka ef það
    þyrfti einhverja viðbót.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sömuleiðis er mjög ánægjulegt að segja frá því að eins og kerfið
    var hugsað í upphafi er opnað fyrir það að gera uppbyggingarsamninga við
    uppbyggingaraðila sem hafa verið að breyta fyrirætlunum sínum um
    uppbyggingu á húsnæði. Fyrsti samningurinn var gerður við Þingvang í
    Hafnarfirði sem fékk íbúasamsetningu og skipulagi breytt til þess að semja
    um uppbyggingu inn í kerfið. Við erum vongóð um að fleiri
    uppbyggingarsamningar séu fram undan þar sem verktakar hafa áhuga á að
    byggja inn í kerfið. Það er mikil þörf á því vegna stöðunnar á
    húsnæðismarkaði þar sem uppbyggingaraðilar og stjórnvöld þurfa
    sameiginlega að vinna úr því að þegar verkefnastaðan dregst saman þá má
    ekki undir nokkrum kringumstæðum hugsa til þess að byggingamarkaðurinn
    fari á viðlíka stað og hann fór eftir hrun þar sem hann fór nánast í
    algjört frost. Hlutdeildarlánin eru því á miklu betri stað en þau voru.
    Það sem við erum líka með til skoðunar er hvort við getum eflt þau til að
    þau nái til breiðari hóps fólks, breiðari tekjuhópa o.s.frv., en þær
    breytingar liggja ekki alveg fyrir og ekki kostnaðarmat á þeim
    heldur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>