<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-14T15:10:55" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:12:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:10:55">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið.
    Hæstv. ráðherra staðfesti í raun og veru það sem mig grunaði, að sú
    aukning sem var til komin með breytingunni í fyrra, þar sem mun fleiri eru
    að sækja um hlutdeildarlán en áður, sem er jákvæð þróun, er ekki
    fjármögnuð hérna. Það fylgir því ekki fjármagn inni í þessum fjárlögum.
    Hæstv. ráðherra kom hér og sagði að mögulega þyrfti að koma með fjárauka á
    næsta ári, sem er bara fínt, en mér finnst alltaf skrýtið, virðulegur
    forseti, þegar við erum að leggja hér fram fjárlög með verkefnum
    innanborðs sem við vitum að eru ekki fjármögnuð og munu kalla á fjárauka
    næsta árs. En ég óska bara hæstv. ráðherra velgengni með það að fá aukið
    fjármagn í þetta verkefni. Sömuleiðis held ég að það séu mikil tækifæri í
    því, einmitt eins og hæstv. ráðherra sagði áðan, að útvíkka verkefnið enn
    frekar og að það nái til enn breiðari hóps. En ég deili áhyggjum mínum með
    hæstv. ráðherra hvað varðar fjármögnun á þessu verkefni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>