<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-14T15:12:34" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-14 15:13:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="5" lgþ="158" tími="2026-09-14T15:12:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari
    spurninguna. Það er gott að vita til þess, og ég vissi það svo sem fyrir
    fram, að við erum sammála um mikilvægi kerfisins. Það var ánægjulegt að
    sjá hve vel breytingarnar í desember skiluðu sér inn í kerfið, þ.e. í
    fyrsta skipti eiginlega bara frá því að kerfinu var komið á byrjaði það að
    virka loksins, sem gefur fullt tilefni til að endurskoða frekari eflingu
    kerfisins og hvað við getum gert til þess að það nái til breiðari hópa.
    Þetta snýst ekki alltaf um aukið fjármagn. Þetta snýst líka um það að
    reyna að koma því fjármagni sem eyrnamerkt er ákveðnum málaflokkum út. Í
    stofnframlögum almenna íbúðakerfisins er okkar helsta áskorun að
    verkefnastaðan verði með þannig hætti hjá félögum sem starfa innan almenna
    íbúðakerfisins að þau stofnframlög sem við erum búin að eyrnamerkja eða
    það fjármagn gangi út til þeirra félaga og verkefnastaða verði þannig að
    uppbyggingin haldist áfram jafnt og þétt næstu árin.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>